Pantanir:
Við hjá Siglósport tökum við pöntunum þegar greiðsla hefur borist. Þegar greiðsla berst fær kaupandi senda staðfestingu í tölvupósti.
Greiðsla:
Hægt er að greiða pantanir með kreditkorti, íslensku debetkorti, netgíró eða millifærslu. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgun, því fær Siglósport aldrei kortaupplýsingar kaupanda. Öll verð eru með VSK og aukakostnaði.
Sendingarmáti:
Pantanir okkar er hægt að fá sendar með pósti eða sækja þær í verslun á opnunartíma eða eftir samkomulagi. Sendingarkostnaður er frír.
Pantanir eru sendar með Íslandspósti, en það tekur allt að 1 virkan dag að afgreiða pöntunina. Sendingartími er 1-4 virkir dagar.
Hjá okkur gilda afhendingar-,ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru. Ef valið er að sækja pöntunina til okkar á Aðalgötu 32b, 580 Siglufirði þá gildir opnunartími verslunarinnar eða eftir samkomulagi. Verslunin er opin alla virka daga frá kl. 10-17 og laugardaga frá kl 13-17.
Vöruskil:
Skilafrestur er 14 dagar frá kaupum. Vöru fæst aðeins skilað sé hún ónotuð og í upprunalegu ástandi. Tilkynna skal vöruskil á rut@siglosport.is. Boðið er upp á inneignarnótu eða vöruskipti. Athugið þegar vöru er skilað ber kaupandi ábyrgð á vörunni þar til hún hefur borist okkur. Kaupandi greiðir sendingarkostnað sé vöru skilað. Sé vara endursend verður hún að berast á heimilisfang Siglósports.
Hafi viðskiptavinur fengið skemmda eða ranga vöru, ber honum að upplýsa okkur um það við fyrsta tækifæri og munum við taka fulla ábyrgð á því.
Fyrirvari:
Siglósport áskilar sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara. Allar upplýsingar og verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillu og myndbrengl. Siglósport áskilur sér rétt til að hætta við pöntun komi í ljós að varan sé vitlaust verðmerkt eða uppseld. Í þeim tilfellum er viðskiptavini endurgreitt.
Trúnaður:
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum, nema svo beri skylda gagnvart lögum.
Lög og varnarþing:
Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli Siglósports og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum.